Undirbúningur fyrir heimferð !!

Þessari dvöl okkar og svakalegu lífsreinslu fer núna loksinns að ljúka ! Trúi ekki að ég get sagt það upphátt, Ljósmæðurnar halda að hún fari heim með sonduna sem hún fær restina af matnum í , var ekki nóu sátt fyrst vildi bara losna við allt en þetta verður svo stutt og við viljum ekkert meira enn að fá hana heim. Hún er byrjuð að drekka 62 og heil gjöf er 67 svo hún er að ná þessu, en stundum er hún soldið löt og drekkur bara 45 sem er ekki alveg nó til að hún þyngist almennilega :) en þetta verður bara stutt á meðan hún er að ná tökunum á þessu.
í dag fór hún í seinustu heila skoðunina sem að allir fyrirburar fara í áður enn þeir fara heim, Og fáum við að vita úr henni á morgun , en allar heila skannanir hafa komið frábærlega út svo við þurfum ekkert að stressa okkur.
Nýar spelkur 

Hún Anja  er búin að fá spelkurnar sínar og finnst henni það sko ekkert leiðinlegt! hún fer í spelkurnar á 1 kl tíma fresti , Get ekki ímyndað mér hvað þær eiga eftir að gera mikið fyrir hana á meða við hvað BARA sjúkraþjálfarinn gat gert !

Það verður undir búið okkur fyrir heimför á föstudaginn kl 11  og förum þá á fund erum svo spennt :)

Lífið gjörsamlega leikur við okkur þessa stundina


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur