Heimferð á morgunn
120 dagar á enda
120 dagar á enda

Jæja þá fer bara að líða að þessu, Prinsessu herbergið reddí og veggir sprittaðir allt tilbúið , Einar ætlar heim á eftir að þvo heimfara settið hennar og heilsa uppá baby hundinn okkar sem bíður spennt get ekki beðið eftir að sjá svipin á henni og viðbrögð þegar hún kemur heim.
Eftir að við komum í foreldraherbergið á vöku þá er lítið búið að sofa , Anja er svolítið óvær útaf því að á vökudeildinni er aðeins meiri hávaði þar er meiri umgangur og píp og allt annað umhverfi, Svo henni fannst þetta frekar skrítið allt saman! Svo á mömmu næturvakt var skottan glaðvakandi frá 11-4 tók kl tíma svefn og vaknaði svo aftur en núna í nótt þá tók pabbinn næturvaktina og hún svaf svo vært. Og ég fékk að sofa ! ó hvað það mun verða langt þangað til að maður fær að sofa út haha!
Þessi dvöl er búin að kenna mér svo mart!
Ég er að farast úr spenning , ÞETTA ER AÐ GERAST GOTT FÓLK
Anja ER AÐ KOMA HEIM !
Anja ER AÐ KOMA HEIM !
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir


Ummæli