Útkoman var góð
Fengum að vita að það væri ekkert að mjöðmunum á Önju , Þannig að nú verður hún sett í spelkur til að hjálpa vöðvanum að vaxa rétt og þá ættu fæturnir hennar að verða ansi glæsilegir , Svo að öðru við fengum heyrnalækni í heimsókn og hún ætlaði að fá að mæla heyrnina hjá fallegu dóttur minni og kom það vel út og fékk hún topp einkun svo seinna um daginn fór hún í augnmælingu og sá hún ekkert athugavert við hana svo að litla daman mín er bara fullkomin í alla staði,
Þolinmæði er ekkert grín!
Nú erum við hjónin búin að vera hér í tæpa 3 mánuði og get ég alveg viðurkennt það að þolinmæðin er alveg á þrotum , mér finnst þetta bara orðið gott ,Mér langar bara að FÁ HANA HEIM !
Allt að verða tilbúið fyrir barnaherbergið
Máling: Sandur
Eftir langa leit fann ég loksinns rétta litinn
Svo fannst okkur viðeigandi að hafa hvítt parkett
kom rosalega vel út
Ekki leiðinlegt að eiga einn alt mulig mand
heima sem getur gjörsamlega allt
hvar væri ég án þín Einar Örn Adolfsson .
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir




Ummæli