Ég er reið en á sama tíma þakklát
Ég er búin að vera hugsa mikið undanfarið hversu yndislegt líf ég á í dag ég á yndislegan eiginnmann og gullfalega dóttir sem er mér allt , Ef ég hefði ekki átt hann Einar minn þá hefði Anja að öllum líkindum ekki verið hér í dag! Þann 23 Oktober fórum við í 20 vikna sónar , Þennan dag HRUNDI allt ! Í byrjun af tímanum var allt yndislegt og skemmtilegt fengum að vita að við værum að fara að eignast stelpu við hjónin alveg í skýunum, allt í einu varð læknirinn áhyggju full á svip og sagðist ætla að ná í fæðingarlækni til að skoða þetta með henni , Þarna vorum við ekki alveg viss hvað væri í gangi! Svo kom hún og skoðaði hana , hún var mjög alvarleg á svipinn og sagði að barnið mitt væri að öllum líkindum með mjög vanskapaðar fætur ég man hvernig mér leið, allt gjörsamlega hrundi eina sem ég náði að koma uppúr mér var " Verður dóttir mín samt ekki í lagi ? " þá sagði hún að í flestum tilfellum væri þetta vísbending á vöðvasjúkdóm en hún ætlaði að fá barnalækni sem sérhæfði sig í taugum og vöðvum til að tala við okkur, Ég gat ekki hætt að gráta Vá hvað ég grét.
2 dögum eftir sónarinn vorum við boðinn á fund, Þar tók barnalæknirinn og fæðingarlæknirinn á móti okkur ! Ég man hvað það var kulda legt í þessu herbergi , En þarna vorum við komin og vorum við með MIKIÐ af spurningum , Læknirinn tilkynnti okkur það barnið okkar væri að öllum líkindum með vöðvasjúkdóm eða vöðvarírnunarsjúkdóm en þá lifir barnið ekki lengi ! Svo voru líkur á því að barnið okkar væri með Edwars heilkenni og þá yrði barninu mínu ekki hugað líf ! og þetta sagði hann án þess að blikka! svo að lokum buðu þau mér að koma í fóstureyðingu! þetta var eins og rennblaut tuska í andlitið á mér ! og þetta var mér boðið á undan legvatnsástungunni ! Mér leið eins og galla í kerfinu sem þeim langaði til að losna við! Ég spurði svo oft er ekki séns á því að barnið mitt sé bara með þennan fóta galla og ekkert meira ? þá var svarið það er mjög ólíklegt og það er alltaf eitthvað undirliggjandi ! svo bætti hann við það eru nátturlega ekki allir sem eru til í að eiga svona börn ! Vá hvað ég var reið. Við komum heim og ég var gjörsamlega buguð ég grét og grét, Ég grét þegar ég fann hreyfingar ég vildi bara losna undan þessum gríðarlega sársauka, Þannig á þessum tíma punkti þegar allt var svart gjörsamlega bugaðist ég, Ég veit ekki hvað hefði orðið ef að ég hefði ekki klettinn minn hann Einar ! á þessum tíma fengum við 2 vikur til þess að ákveða okkur , ég sagðist strax vilja fara í legvatnsástungu. þegar niðurstöðurnar voru komnar vorum við í skýunum hún var ekki með neinn auka litning og ekki vöðvarírnunar sjúkdóm ! Ohh loksins gat ég haldið meðgöngunni áfram ! en svo 2 vikum seinna kom drauma dísin mín og fullkomlega HEILBRIGÐ , Þau gjörsamlega eyðilögðu meðgönguna mína ég er svo reið og sár að þau skuli hafað boðið mér fóstureyðingu áður en mér var boðin legvatsástungan ! hvað ef við hefðum ekki verið nóu sterk ! mér fannst læknirinn svo kaldur og tillitslaus að mér ofbauð , á þessari stundu hefði ég vilja Smá nærgætni er það of mikið til að byðja um !
Hún er líf mitt og stolt
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli
Það situr ennþá svo í mér þegar ég var gengin 10 vikur með mitt fyrsta barn og ég sagði við lækninn minn að við ætluðum ekki í hnakkaþykktarmælingu. Að þetta væri barnið okkar og við myndum taka því hvernig sem hvaða mælingar sem voru í boði kæmu út. Hún nánast skammaði mig, sagði okkur ung og heilbrigð og að við vissum ekkert hvernig það væri að vera með veikt barn. Við vitum reyndar sem betur fer ekki enn þann dag í dag hvernig það er að eiga veikt barn, við vorum svo heppin að fá fullkomalega heilbrigðan gullmola í hendurnar. En ég er ennþá sár, þetta var okkar val, okkar líf og okkar ákvörðun.