Framför & góðar fréttir 

Hún Anja er komin af hiflow öndunarstuðningnum


Eina sem hún er með framan í sér er sondan rörið sem hún fær matinn sinn í gegnum , Anja er orðin 2528 grömm og 47 cm og er byrjuð að drekka 20 ml á pela en fær í heildina 51 ml í hverri gjöf sem er á 3 tíma fresti svo að hún er byrjuð að drekka næstum helming af því sem hún á að fá og svo fer restin bara í sondu , Anja má koma heim um leið og hún er byrjuð að ná að drekka fullann skammt þannig nú bíðum við bara sú litla er sko EKKERT að flíta sér!



Baðtími


Sæta sefur svo vært


Fer vel um þessa 

EN þá í annað 

Bæklunar læknirinn hérna á barnaspítalanum kom og kíkti á Önju, 
og var ég með svo margar spurningar sem voru að brenna á heilanum þessa stundina var búin að bíða svo lengi eftir að fá að hitta hana,  Hún tilkynnti mér það að Anja væri að fara í SPELKUR á miðvikudaginn ég alveg ekki að geta hamið mig þarna úr gleði , Svo kom spurninga flæðið " Mun hún geta labbað ? mun hún labba eðlilega ? Ég fékk AÐ ÖLLUM LÍKINDUM eins og staðan er í dag þá ætti hún að geta það JÁ , það skríkti alveg í mér ég var gjörsamlega að sprínga úr gleði , Ég hélt að Anja væŕi eina TILFELLIÐ á Íslandi sem hefði fæðst með þennan galla en nei það eru til alveg nokkur tilfelli og segir hún að Anja sé með það góða spennu í löppunum að þetta stenst með það að ég hafi verið með svo lítið legvatn að dóttir mín hafi þvingast í þessa fáránlegi stöðu sem hún var í! 

Það er allt að ganga upp hjá okkur núna , þessir erfiðu mánuðir eru að verða BÚNIR og þið getir ekki ímyndað ykkur hvað ég er fegin! 

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Unknown sagði…
Mikið er hún yndisleg.. Ég er alltaf að kíkja inn til að sjá hvernig gengur og það eru alltaf jákvæðar fréttir.

Gangi ykkur áfram vel.

kv Kolbrún tvíburamamma :-)

Vinsælar færslur