Mikil gleði hér á bæ
Anja er orðinn 1622 grömm , Hún er svo dugleg að anda sjálf svo að læknarnir vildu endilega að hún fengi að fara af c-p sem er GEÐVEIKT! svo núna er hún bara með súrefnisgleraugu eins og þau kalla það.
Orðin svo stór ! og sjá þessar bollukynnar <3
En jæja Anja er orðin það stór og sterk að hún fékk að fara á BRJÓST í gær vá þessu tilfinning er óaðfinnanleg ! þessi tenging var yndisleg, Anja náði að sjúga 3 sinnum sem er bara geðveikt yfirleitt jappla þau aðeins á henni þegar þau eru svona ung Anja er nátturulega bara 33 vikna yfirleitt eru þau farinn á brjóst um 34 vikna því að þau þurfa að vera búin að læra að sjúga kyngja og anda allt á sama tíma,Anja fer svo að færast yfir á vinstri væng sem er seinasta stoppistöðin fyrir heimkomu þar fær hún að stækka og læra á brjóst svo fer hún bara að koma heim .
Ég er búin að vera svo föst við hana undanfarna daga og pabbin ern lítið búinn að komast að , Þarna fékk hann loksins að halda á prinsessunni og var hann svo ánægður
Þarna er Pabbinn að gefa litlu að borða í gegnum sonduna sína .
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir





Ummæli