Þetta er ekkert grín
Anja mist byrjaði að vera rosalega slöpp fyrir 2 dögum, Hætti að melta varð öll lin og veik svo endaði á því að um nóttina var hringt í okkur kl 4 og tilkynnt að það væri búið að færa Önju aftur á H1 gjörgæslu og í öndunarvél, Ég gjörsamlega brotnaði niður var ekki að trúa þessu að litla stelpan mín væri orðin svona veik,
Anja er víst kominn með sýkingu og þau vita ekki alveg hvaðan hún kemur en svo þegar við komum í dag 13,01,15 þá var hún aðeins hressari og saug snuðið sitt , Vá hvað okkur var létt þessi síklalyf eru greinilega farinn að virka á snúlluna mína. Hjúkkunum finnst Anja svo hógvær og góð hún kippir sér ekkert upp við það þegar verið er að stinga hana, henni gæti ekki verið meira sama , við meigum greinilega búast rólegu barni
Ekkert er sterkara en móður ást
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir



Ummæli