Jólabað

Anja Mist 

Jáh , Anja fékk jóla baðið sitt í morgun og var alls EKKI sátt 
þegar C-papinn var tekinn (öndunar aðstoðin) blasti við okkur þessi rosalegi fílusvipur og tölum ekki um þessa undirhöku sem stúlkan er búin að vera að safna í núna undanfarnar vikur mömmu sinnar til mikillar hamingju.

 Við foreldrarnir gátum ekki annað en hlegið
( Afar óskýr mynd afsakið það )
Þessi bollubína var viktuð í morgun og er orðin 780 grömm, Við erum að tala um að það eru aðeins 220 grömm í 1 KÍLÓ , og á 4 daga fresti þingist hún um 20-30 grömm þetta stittist , Og alltaf er þessi að verða bollulegri og bollulegri , Mikil tilhlökkun í 1 kíló því þá fær Anja að fara úr hitakassanum.

En nú er komið gott í bili ég kveð frá kaffistofunni á Barnaspítala Hringsinns 

Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur