Góðan Daginn

Naflinn er Gróinn 

Þá er naflinn gróinn og búið að lækka hitann í hita kassanum þannig nú sér maður skottuna betur. Hjúkrunarfræðingurinn sagði að þessi verður algjör skoppari þar sem hún er alltaf að rífa af sér bleyjuna , Sú litla var búin að kúka og reyf bleyjuna af sér og þegar hjúkrunarkonan kíkti á hana lá hún bara í kúkinum sínum og virtist bara vera nokkuð sátt með það , En burt sé frá þessu gamani að þá sagði hjúkrunarkonana að ég megi örugglega halda á henni í dag ER SVO SPENNT , Og svo er þessi elska kominn yfir fæðingar þyngd . já svo er það annað hún er að byrja að OPNA AUGUN !!!! Guð er góður !



Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli

Vinsælar færslur