Anja er að losna af súrefninu
Í dag fórum við fyrsta skiptið út með Önju án SÚREFNIS ég er ándjóks ekki að trúa þessu! Ég ákvað að það væri komin tími til þess að horfast í augun við óttann því jú það hlaut að koma að þessu, þessi dagur heppnaðist svo dásamlega!!! við skruppum til tengdó í hafnarfjörðinn og svo fórum við í krónuna! Mér fannst svo dásamlegt hvað fólk horfði á hana og brosti, Ég verð að viðurkenna að þegar ég fer út með Önju með súrefnisgleraugun þá fæ ég oft svona "vorkunnar bros" eða fólk er hrætt við að horfa á hana sem er ósköp skiljanlegt, en ég verð að segja að mér fannst þetta góð tilfinning að fólk samgleðst mér í staðin fyrir að finna til með okkur!! Það er svo skrítið að ég hef aldrei verið á betri stað andlega séð og í dag! Anja hefur kennt mér að meta lífið og taka engu sem sjálfsögðum hlut, Ég er búin að vera langan tíma í burtu frá vinnu og á þessum tíma hef ég fengið að kynnast sjálfri mér á allt annan hátt! ég er byrjuð að þekkja mína styrkleika og veikleika.
Anja er núna alveg hætt á súrefni á daginn (nema ef hún fer í pössun) og er það búið að ganga ofboðslega vel.

Það sem ég lærði
- Ég er mjög óþolinmóð og þrjósk að eðlisfari en Anja kenndi mér þolinmæði
- Ég lærði að ég get meira en ég held
- Ég lærði að með trú von og kærleika er allt hægt
- Ég lærði að treysta mömmu hjartanu ( í mörgum tilfellum veit mamman best )
- Ég lærði að fjölskyldan er það dýrmætasta sem maður hefur
- Ég lærði að sumt er bara ekki þess virði að pirrast útí
- Ég lærði að hamingja er hugarástand og það er allt undir mér komið hvernig dagurinn verður
- Ég lærði að morgundagurinn er ekki lofaður svo ég reyni að nýta dagin til fulls
Njótið dagsins kæru vinir
gudbjorghrefna
Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli