1 Kíló

Gimsteinn 

Þessi fallega Bumbulína er orðin 1010 grömm og hjúkrunar konan segir að nú fer þetta allt að gerast hraðar , Anja er farin að þyngjast um 50-60 grömm á dag ætlaði ekki að trúa þessi , Hún er einu skrefi nær því að koma heim <3 

Hjúkrunarfræðingarnir ráðlögðu okkur að byrja ekki á barnaherberginu fyrir en hún mætti fara af gjörgæslu og hún er næst til að verða færð af gjörgæslunni svo við erum byrjuð að mæla barnaherbergið fyrir nýu parketi sem við erum búin að velja og verður hvítt alveg eins og er í stofunni 

Hvítt Bleikt og Grátt 
erum við búin að velja fyrir þemað í barnaherbegið, Og erum við svo spennt að byrja á því núna eftir áramót 


En ég vil enda þetta með því að óska ÖLLUM 

Gleðilegs nýs árs 
 &
Þakka fyri árið sem er að líða 


Guðbjörg Hrefna Árnadóttir

Ummæli